Síðasta kvöld heppnaðist svo vel að við reynum aftur. Síðast fóru sumir í Grímkel en það er engin skylda. Við finnum einhvern góðan bar í firðinum til þess að hittast á.
Kromby
sunnudagur, 17. nóvember 2019
Á laugardaginn kemur fer hið stórkostlega matar- og rauðvínskvöld fram á Drekavöllum hjá Bere og Zigz. Húsið opnar eins og svo oft áður klukkan 18:00. Þátttökugjaldið er fimm þúsund krónur og greiðist það inn á hress sjóðinn helst fyrir kvöldið en þeir sem hafa greitt í Hress sjóðinn fá 20% afslátt.
Kromby
mánudagur, 28. október 2019
|
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður gerð tilraun til þess að endurverkja hin ógleymanlegu hress kvöld. Það er að vísu óljóst hvort það verður á Hansen eins og forðum en þá finnum við bara annan bar.Við stefnum að því að mæta á barinn fljótlega upp úr átta og sitja að sumbli í smá tíma.Vonandi komast sem flestir
Kromby
föstudagur, 18. október 2019
|
Þetta árið þá verður Matar og Rauðvíns haldið í 221 en þetta er í annað skipti sem Hresslingar halda út á velli í sínu fínasta pússi. Árið 2015 var boðið upp á hreindýr, lax og crepes svo fáeitt sé nefnt en þá buðu Óskar og Begga heim. Að þessu sinni eru það Berenice og Zigz sem bjóða hresslinga velkomna. Skráning hefst fljótlega.
Kromby
þriðjudagur, 17. september 2019
|
Verður 2. nóvember næstkomandi!
Kromby
laugardagur, 7. september 2019
|
Harðhaus 233 verður á föstudaginn hjá Guðjóni og hefst kvöldið klukkan 20:30.
Kromby
miðvikudagur, 12. júní 2019
|
Í hádeginu 12. febrúar næstkomandi ætla nokkrir hresslingar að hittast á Bastard við Vegamótastíg og þér er boðið með. Það er til svakalega fínn facebook viðburðir en ef ég skildi hafa gleymt þér, sem er líklegt vegna þess að ég bauða eiginlega ekki neinum, þá endilega sendu mér línu og ég bæti þér við. Endilega látið vita sem fyrst með komu svo það sé hægt að panta borð.
Kromby
miðvikudagur, 6. febrúar 2019
|
Hress hefur skipt um banka og er því komið með nýtt reikningsnúmer. Hress er svo líka komið með Kvitt númer svo nú er hægt að leggja inn á Hress sjóðinn með Kvitt appinu. Nýja reikningsnúmerið og Kvitt númerið má finna undir prófíll og Hress sjóðurinn. Og þar sem búið að leysa vandamál í innskráningu þá ættu allir að geta skráð sig inn núna.
Kromby
þriðjudagur, 29. janúar 2019
|
Ingvar var kjörinn harðhaus ársins annað árið í röð. Önnur úrslit má sjá á verðlaunasíðunni. Einnig var samþykkt að hefja endursýningar á gömlum harðhausamyndum á uppgjörskvöldinu ár hvert.
Kromby
sunnudagur, 27. janúar 2019
|